Nú í sumar hefur verið unnið að endurbótum á Gamla bókasafninu að utanverðu. Húsið er að verða hið glæsilegasta. Þessar umbætur hafa raskað húsnæðinu að innanverðu og unnið er að því að laga það.
Vegna þessa alls er ekki alveg ljóst hvenær húsið opnar
miðvikudagur, 18. ágúst 2010

föstudagur, 4. júní 2010
Þið eruð sérstaklega boðin velkomin á Bjarta daga í Gamla bókasafninu
3. júní Fimmtudagur - Trúbadorakeppni
4.júní Föstudagur – Listasýning, grill og tónlist.
6. júní Sunnudagur – Rokk tónleikar
föstudagur, 28. maí 2010
Nokkrar smáfréttir
Það er lokað hér á Hvítasunnudag og annan í Hvítasunnu
Hér byrja námskeið fyrir unga atvinnuleitendur þann 25. maí og verða haldin á daginn. Fullt er í þau.
Húsið lítur illa út að utan en verið er að skipta um glugga og gera við sprungur. Það hljótast því einhver ónæði af þessu en við erum ekkert að loka.
Það er enn opið og venjulegum tímum hér.
Við, húsráð og starfsmenn erum að undirbúa Bjarta daga sem verða haldnir í Hafnarfirði 2. - 6. júní. Hér í húsinu verður góð dagskrá eins og trúbadorakeppni, listasýning og alvöru stórtónleikar.
góðar stundir
miðvikudagur, 19. maí 2010
Gamla bókasafnið fagnar hækkandi sól á Björtum dögum um leið og það
kveður fyrir sumarlokun...Dagskráin er alls ekki af verri endanum í ár.... sumir myndu jafnvel ganga svo langt að segja að hún sé stórglæsileg þetta árið!
Við hefjum leika fimmtudaginn 3. júní með trúbadorakeppninni okkar sívinsælu, en hún heppnaðist með eindæmum vel í fyrra og ekki er búist við minna af keppendum þessa árs....
Skráning fer fram á gamlabokasafnid@gmail.com eða í síma 565-5100
Ætlast er til að keppendur flytji þrjú frumsamin lög eða tvö frumsamin og eina ábreiðu.
Föstudaginn 4. júní verður svo GEGGJUÐ GRILLVEISLA!!!! Gamla bókó býður gestum uppá grillaðar pylsur og fáránlega mikið fjör!
Þá verður líka formlega opnun á listasýningu þar sem ungu listamennirnir Ingimundur Vigfús Eiríksson, Iona Sjöfn Huntingdon-Williams og Sara Jóhannesdóttir sýna ljósmyndir og verk.
LOKATÓNLEIKAR SUNNUDAGINN 6. JÚNÍ....SJÓMANNADAG!
síðustu tónleikar fyrir sumarlokun Gamla bókasafnsins verða með glæsilegasta móti í ár! Nokkrar eldheitar hljómsveitir stíga á svið og halda uppi rugl góðri stemmingu allt kvöldið!!!
Hljómsveitirnar sem fram koma eru...
Ourlives
Cliff Clavin
We Made God
Endless Dark
Vulgate
Örför
Húsið opnar kl: 19:00
FRÍTT INN Á ALLA VIÐBURÐI!!!
Jebb ég sagði það.... núll kr inn alla dagana!!!
þriðjudagur, 18. maí 2010
| (1) 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 | 











